Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sagði á Alþingi nýlega að til stæði að fara í heildarendurskoðun á almenna byggðakvótanum. Kerfið hefði ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með og væri í algerri stöðnun. „Flækjustigið er hreinlega með algjörum ólíkindum,“ sagði ráðherra. ÚRELTAR REGLUR UM ÚTHLUTUN OG ENGIR MÆLIKVARÐAR Á HAGKVÆMNI, SKILVIRKNI EÐA ÁRANGUR Í máli sínu vísaði hann í úttekt Ríkisendurskoðunar frá því í júlí 2024, þar sem fram kom að gera þyrfti veigamiklar breytingar á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þar segir að reglur um úthlutun hafi sáralítið breyst frá upphafi, þar séu engir mælikvarðar á hagkvæmni, skilvirkni eða árangur. Því þurfi að endurskoða úthlutunarkerfið frá grunni og móta um það skýra stefnu, endurskoða kröfur og skilyrði um úthlutun almenns by