Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði með Jónasi Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í dag. Þau ræddu meðal annars stöðuna á norðurslóðum og mikilvægi samstarfs þjóðanna um varnar- og öryggismál.„Við höfum bæði mikla hagsmuni af stöðunni hérna á norðurslóðum,“ segir Kristrún. „Það hafa verið miklar breytingar og spenna í umræðunni í upphafi árs um þetta svæði. Það hefur líka orðið mikil breyting í umræðu varðandi varnar- og öryggismál.“Hún segir samstarf Íslands og Noregs í góðum farvegi. Bæði lönd hafi sameiginlegra hagsmuna að gæta á sviði öryggis- og varnarmála og þurfi til að mynda að standa vörð um Giuk-hliðið og fylgjast grannt með mögulegum hreyfingum Rússlands.„Ég myndi segja að ef eitthvað er þá er Noregur það land sem hefur líkustu hagsmuni og okkar þegar kemur að örygg