Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Friðrik Danakonungur kominn til Grænlands

Friðrik X Danakonungur er kominn til Grænlands í þriggja daga opinbera heimsókn. Konungurinn lenti í Nuuk í hádeginu þar sem Jens-Frederik Nilsen, formaður landsstjórnar Grænlands, og Kim Kielsen, forseti grænlenska þingsins, tóku á móti honum. Vel fór á með þeim þremur og féllust þeir í faðma þegar Friðrik steig út úr flugvélinni.Hann boðaði til heimsóknarinnar í janúarlok og lýsti þá yfir stuðningi við málstað Grænlendinga. Á morgun heldur hann í 150 kílómetra ferðalag til norðurs og heimsækir eyju skammt frá fjöllum á meginlandinu með demanta-, rúbína- og asúrsteinsnámum. Á föstudaginn sækir konungur danska heimskautahermenn heim sem dvelja í æfingabúðum, enn norðar á Grænlandi.
Friðrik Danakonungur kominn til Grænlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta