György Kurtág fæddist í Rúmeníu 19. febrúar 1926, en foreldrar hans voru ungverskir Gyðingar. Þar sem Kurtág er enn á lífi verður hann 100 ára 19. febrúar 2026. Haldnir verða tónleikar honum til heiðurs þar sem tónskáldið verður viðstatt og einleikari á píanó verður Víkingur Heiðar Ólafsson, en hann er mikill aðdáandi Kurtágs og hefur tileinkað honum geislaplötu sína „From Afar“. ÆSKUÁR KURTÁGS Á unglingsárum sínum stundaði György Kurtág tónlistarnám í borginni Timisoara í Rúmeníu og lærði píanóleik og tónsmíðar. Árið 1946, þegar hann var tvítugur að aldri, fluttist hann til Búdapest og gerðist skömmu seinna ungverskur ríkisborgari. Hann hóf nám við Franz Liszt-tónlistarakademíuna í Búdapest og þar kynntist hann píanóleikaranum Mörtu Kinsker. Hún varð konan hans árið 1947 og þau áttu of