Hæstiréttur hefur vísað máli heildsölunnar Distu á hendur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá Hæstarétti og því stendur dómur Landsréttar í málinu óhaggaður. ÁTVR greiddi málskostnað fyrir Landsrétti daginn eftir dómsuppsögu og fyrirgerði sér þannig rétti til áfrýjunar til Hæstaréttar. Hæstiréttur benti á að ÁTVR er ríkisfyrirtæki með löglærða menn í vinnu og naut aðstoðar lögmanna við rekstur málsins og því hefði það staðið ÁTVR næst að sýna fram á hvers vegna málskostnaður var greiddur, en það hefði ekki verið gert.