Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og forstjóri Meta, ber vitni fyrir dómi í Bandaríkjunum í dag í máli gegn samfélagsmiðli hans, Instagram. Ung kona, sem byrjaði sem barn að nota Instagram og Youtube, segir fyrirtækin sem eiga þessa samfélagsmiðla hafa hannað þá til að gera þá meira ávanabindnadi fyrir börn til að auka hagnað. BYRJAÐI AÐ NOTA YOUTUBE 6 ÁRA OG INSTAGRAM 9 ÁRA Konan höfðaði málsókn gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram, og Google, móðurfyrirtæki Youtube. Hún heldur því fram að notkun samfélagsmiðlana sem barn hafi ýtt undir fíkn í tæknina, hún hafi þróað með sér þunglyndi og glímt við sjálfsvígshugsanir.Konan byrjaði að nota Youtube þegar hún var sex ára og Instagram þegar hún var níu ára, samkvæmt upplýsingum frá lögmanni hennar. Hún notaði Instagram í allt að 16 klukkus