Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðhald á ferjunni Sæfara reynist tímafrekt

Áætlað er að siglingar Sæfara milli Grímseyjar og Dalvíkur hefjist aftur í síðasta lagi 9. mars. Skipið fór í slipp í reglubundið viðhald þann 19. janúar og segir í tilkynningu Akureyrarbæjar að það hafi reynst tímafrekara en áætlað var. Engar siglingar verða á milli Dalvíkur og Grímseyjar meðan á viðhaldinu stendur og eru ferðalangar því beðnir að nýta flugferðir á meðan. Flogið er samkvæmt áætlun þrisvar í viku á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Ferjan Sæfari við bryggju í Hrísey.RÚV / Ólöf Rún Erlendsdóttir
Viðhald á ferjunni Sæfara reynist tímafrekt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta