Þótt rekstrarniðurstaðan á síðustu mánuðum ársins 2025 hafi verið ákveðin varnarsigur fyrir Símann eftir brotthvarf Enska boltans þá olli ný afkomuspá fyrir yfirstandandi ár, sem litast meðal annars af kostnaðarþrýstingi frá erlendum birgjum, nokkrum vonbirgðum meðal fjárfesta. Hlutabréfaverð félagsins lækkaði skarpt á markaði í dag.