Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í ræðustól Alþingis í gærkvöldi.Heitar umræður urðu undir liðnum fundarstjórn forseta í gær vegna frumvarps félagsmálaráðherra um bætur almannatrygginga. Ráðherrann, Ragnar Þór Ingólfsson, blandaði sér í umræðuna og fóru orð hans fyrir brjóstið á Jóni sem svaraði fullum hálsi.“Þetta er eins og ótíndur götustrákur er hér á ferð en ekki ráðherra í ríkisstjórn Íslands,” sagði Jón og spurði síðar í ræðunni: “Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega inn á þing?”Jón sá að sér eftir góðan nætursvefn og baðst afsökunar á orðum sínum þegar þingfundur hófst klukkan 15. Viðurkenndi Jón að honum hafi orðið of heitt í hamsi og að þessi orð hans hafi verið óboðleg. “Ég