Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ýmsar furðuverur leita í hitann í Kringlunni og á Glerártorgi

Öskudagurinn er í dag og krakkar á öllum aldri fjölmenntu í Kringluna og á aðra verslunarstaði, í allra kvikinda líki, til þess að syngja og fá nammi að launum.Hefðin fyrir öskudegi er runnin úr kaþólskum sið og markar hann upphaf lönguföstu fyrir páska. Samkvæmt Vísindavefnum kemur nafnið öskudagur fyrir í íslenskum handritum frá 14. öld og er talið líklegt að nafnið sé enn þá eldra.Langafasta er tími iðrunar í kaþólskum sið en mikilvægi föstu og iðrunar minnkaði með siðaskiptum. Gera má ráð fyrir að fasta hafi ekki verið ofarlega í huga þeirra barna sem mættu í Kringluna í dag þar sem keppst var við að fylla poka af litríku sælgæti.Fréttastofa leit við og ræddi við nokkra hressa krakka.Hermenn, kúrekar, draugar, prinsessur og margskonar matvælaumbúðir héldu í Kringluna í dag í tilefni ös
Ýmsar furðuverur leita í hitann í Kringlunni og á Glerártorgi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta