Félag leikskólakennara segir nýsamþykkta Reykjavíkurleið í leikskólamálum ekki leysa allan vanda en gefur lítið fyrir gagnrýni VR og BSRB. Þetta kemur fram í ályktun félagsins.Reykjavíkurleiðin var samþykkt í borgarstjórn í gær. Hún miðast að því að búa til hvata til að stytta dvalartíma barna. Félag leikskólakennara segir að það sé gott í sjálfu sér og geti aukið fyrirsjáanleika og jafnvægi milli mönnunar og dvalartíma barna.Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði í gær að breytingarnar bitnuðu verst á foreldrum í ósveigjanlegum störfum eða þeim sem eiga lítið bakland og ýttu undir stéttaskiptingu. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði að álögur á fullvinnandi foreldra væru auknar og þjónusta skert.Félag leikskólakennara kveðst gefa lítið fyrir þá gagnrýni. Hún sé ekki byggð á sér