Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu var ekki afgreitt úr velferðarnefnd til þriðju umræðu í morgun eins og til stóð. Stefnt er að því að ræða málið á öðrum fundi en fram undan er kjördæmavika svo málið verður í fyrsta lagi afgreitt þann 2. mars.