Rútubílstjóri var í þarsíðustu viku sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot vegna slyss sem farþegi hjá honum varð fyrir.Dómara þótti sannað að bílstjórinn hefði ekki sýnt nægilega aðgæslu þegar kona sem var farþegi steig út úr rútunni. Hann hefði lagt af stað meðan hún var enn á leið niður tröppurnar og hún dottið við það. Maðurinn hefði síðan ekið af stað og keyrt yfir fætur hennar.Maðurinn neitaði því að hafa ekki sýnt nægilega aðgæslu, hann hefði litið í baksýnisspegla og fylgst með því að fólk væri komið út úr rútunni og enginn á leiðinni. Innan rútunnar eru staðir sem sjást ekki úr bílstjórasætinu, þar með taldar tröppurnar sem konan var að hafa niður um þegar bílstjórinn lagði af stað. Konan og annar farþegi báru vitni um að hún hefði verið á útleið þegar rút