Norska krónprinsessan Mette-Marit segist í skriflegri yfirlýsingu mjög brugðið vegna frásagna fórnarlamba bandaríska kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem hún biðst afsökunar.Mette-Marit kveðst hvort tveggja sem kona og móðir styðja fórnarlömbin heils hugar og segir mikilvægt að raddir þeirra heyrist. Hún ítrekar hve miður sín hún fyrir að hafa ekki í tíma áttað sig á hvaða mann Epstein hefði að geyma.Yfirlýsingin birtist eftir að Marina Lacerda, ein þeirra sem allra fyrst ásökuðu Epstein um kynferðisbrot, gagnrýndi Mette-Marit harðlega í samtalsþætti á NRK. Epstein-skjölin sýna að krónprinsessan átti um árabil í miklum samskiptum við kynferðisbrotamanninn og þeim virðist hafa verið vel til vina.Í tölvupóstum má meðal annars sjá Mette-Marit segja