Höfuðborgin var auð af snjó þegar fólk vaknaði í morgun og verður það eitthvað áfram, þó gæti komið minniháttar fjúk þegar líður á morguninn, segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.Gular viðvaranir voru gefnar út á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hríðarveður. Þessir landshlutar hafa fengið ágætis snjókomu, segir Óli Þór. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar rétt fyrir sjö er hringvegurinn á óvissustigi frá Steinum og austur að Jökulsárlóni fram að hádegi og gæti lokast með stuttum fyrirvara. Ófært er frá Vík að Kirkjubæjarklaustri og þungfært á hringveginum um síðu.Þó að snjórinn hafi ekki losað fólk við svifrykið sem hefur verið síðustu daga gæti það hafa blásið á brott því strekkingsvindur hefur verið á höfuðborgarsvæðinu.Veðurhorfur á landinu til miðnættis a