Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segist engar skoðanir hafa á nýjum eiganda að hundrað prósenta hluti í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík. Sá hafi áður átt hlut í verkefninu, engin eðlisbreyting hafi átt sér stað og telur sveitarstjórinn að bjartir tímar séu framundan með uppbyggingunni.