Samfélagsmiðlar verða umsvifalaust bannaðir í Vestur-Afríkuríkinu Gabon þar til annað verður ákveðið. Ekki var tíundað til hvaða miðla bannið tekur, að því er segir í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar.Talsmaður þeirrar stofnunar sem sinnir öllum fjarskiptamálum sagði í sjónvarpsávarpi færslur á miðlunum kynda undir átökum og sundrungu samfélagsins. Fáein ríki hafa sett eða boðað aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla, einkum að sögn til að vernda börn og ungmenni fyrir óæskilegum áhrifum þeirra.„Óviðeigandi, niðurlægjandi og hatursfullt efnið grefur undan mannlegri reisn, siðavendni, virðingu, samheldni og stöðuleika innan stofnana lýðveldisins og ógnar þannig þjóðaröryggi,“ sagði talsmaðurinn Jean-Claude Mendome.Hann nefndi jafnframt útbreiðslu falskra upplýsinga, einelti og óleyfilega birting