„Með þessari tengingu verður hægt að afhenda rafmagn í Húnabyggð í náinni framtíð. Það er innilokuð raforka í Blönduvirkjun, eins og staðan er í dag. Hún hefur aldrei verið fullnýtt út af ófullnægjandi tengimöguleikum. Virkjunin er í Austur-Húnavatnssýslu og það verður að teljast óeðlilegt að ekki sé hægt að afhenda raforku sem næst virkjuninni,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar og oddviti sjálfstæðismanna, um fyrirhugaða tengingu frá Blönduvirkjun um Húnabyggð.