Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna verður fram haldið í svissnesku borginni Genf í dag með milligöngu Bandaríkjamanna. Hægt virðist miða í samkomulagsátt. Viðræðurnar hófust að nýju í gær og engin merki virtust um að þokaðist í samkomulagsátt til að ljúka þessum mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.Friðarumleitanir Bandaríkjamanna hafa hingað til runnið út í sandinn og AFP hefur eftir ónafngreindum rússneskum heimildarmanni að mikil spenna hafi ríkt á sex tíma fundi gærdagsins. Steve Witkoff, aðalsamningamaður Bandaríkjanna, sagði þó vel hafa miðað. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti dró friðarvilja Rússa enn í efa í daglegu ávarpi sínu en kvaðst sjálfur þegar hafa lýst vilja til að ganga að skilyrðum sanngjarns samnings frá Bandaríkjunum svo ljúka mætti stríðinu.