Framhald annarrar umræðu um umdeilt þingmannafrumvarp formanns atvinnuveganefndar Alþingis um afnám kvótasetningar grásleppu er á dagskrá þingsins í dag.Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins.RÚVÞingfundur hefst klukkan þrjú með umræðum um störf þingsins og fyrirspurnartíma þingmanna. Frumvarpið um veiðistjórn grásleppu er loks á dagskrá eftir umræðu um sveitarstjórnarkosningar í Grindavík.Stjórnarandstaðan lýsti óánægju í gær með að frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, og fjögurra annarra þingmanna stjórnarflokkanna um grásleppu var bætt við dagskrá þingsins. Það var lagt fram á síðasta þingi án þess að hljóta brautargengi.