Lögreglumenn handtóku í gær átján ára vopnaðan mann á hlaupum í átt að þinghúsinu í bandarísku höfuðborginni Washington. Hann var hanskaklæddur og íklæddur bardagavesti auk þess sem gasgríma og hjálmur fundust í bifreið hans. Maðurinn henti haglabyssunni frá sér að fyrirskipun lögreglu, samkvæmt umfjöllun AP-fréttaveitunnar. Hún reyndist fullhlaðin auk þess sem maðurinn hafði skotfæri í fórum sínum. Michael Sullivan, yfirmaður þinghúslögreglunnar, greindi frá þessu á blaðamannafundi. Hvorug deild þingsins er að störfum eins og stendur, næsti fundur öldungadeildarinnar er boðaður 19. febrúar og í fulltrúadeildinni daginn eftir. Sullivan segir unga manninn ekki búsettan í borginni en með mörg heimilisföng og aldrei hafa komist í kast við lögin áður. Bíllinn var ekki skráður á hinn grunaða. S