Gular viðvaranir eru í gildi fyrir Suðurland og Suðausturland vegna norðaustanhríðarveðurs með snjókomu og slæmu skyggni. Veðrið getur valdið versnandi akstursskilyrðum. Óvissustig vegna veðurs er á veginum milli Skóga undir Eyjafjöllum og austur á Mýrdalssand, sem og í Öræfasveit, milli Skaftafells og Jökulsárlóns, og verður það í gildi til hádegis, að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Viðvörunin á Suðausturlandi á einkum við vestantil og austur að Breiðamerkursandi. Svo gæti farið að vegum verði lokað með stuttum fyrirvara og því brýnt að fylgjast með á vefjum Vegagerðarinnar og Veðurstofu. Veðurspáin er annars svohljóðandi:Austan og norðaustan stinningskaldi, allhvass vindur eða hvassviðri og víða snjókoma sunnantil, hvassast syðst. Hægari norðlæg átt og smáél við norðurströndina. Dre