Sjónvarpsþættirnir Danska konan slógu í gegn í upphafi árs. Þáttaröðin fjallar um Ditte Jensen, danska konu, sem hneykslast reglulega á lélegri dönskukunnáttu Íslendinga.Kastljós ákvað í kjölfarið að kynna sér stöðu dönskukennslu á Íslandi. Í Kastljósi í kvöld var rýnt í sögu námsgreinarinnar. Rætt er við nemendur og Kristínu Björnsdóttur Jensen, dönskukennara við Menntaskólann á Akureyri.„Það er alveg á brattann að sækja,“ segir Kristín. „Það eru til dæmis ekkert rosalega margir kennarar sem útskrifast sem eru með dönsku sem sérgrein.“ Kristín segir illa komið til móts við þá kennara og námsefni af skornum skammti.„Það er auðvitað ennþá þessi mýta í gangi sem er að danskan sé bara gagnslaus og tilgangslaus. Það eru ekkert allir með þessa skoðun en hún er alveg þarna.“