Almar Guðmundsson bæjarstjóri leiðir framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 26. maí. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ samþykkti í kvöld tillögu uppstillingarnefndar að framboðslistanum.Í öðru sæti listans er Björg Fenger, formaður bæjarráðs, og þriðja sætið skipar Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar. Í fjórða sæti er Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi og lögmaður, og í fimmta sæti er Stella Stefánsdóttir, varabæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri.