Saltkjöt og baunir er íslenskur réttur sem er víða á boðstólum á sprengidag, bæði á heimilum og veitingastöðum. Áður fyrr var hann algengur allan ársins hring en í dag láta flestir hann eftir sér bara á þessum degi.Gríðarlegur fjöldi lagði leið sína í IKEA í dag af þessu tilefni en þar voru framleiddir yfir 800 lítrar af baunasúpu og tæplega hálft tonn af saltkjöti.