Breytingar á leikskólakerfinu voru samþykktar í borgarstjórn í dag. Leikskóladvöl barna í Reykjavík verður gjaldfrjáls upp að 36 klukkustundum. Þá verður opnunartími leikskóla ekki styttur en foreldrar hvattir til að hafa börn sín skemur í skóla ef hægt er.Í sjónvarpsfréttum var rætt við bæði fulltrúa meirihlutans og minnihlutans í Reykjavík um breytingarnar, sem kallaðar hafa verið Reykjavíkurleiðin. Þá er einnig rætt við Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formann BSRB, sem hefur gagnrýnt breytinguna.„Fólkið sem fær gjaldfrjálsan leikskóla er fólkið sem nýtur sveigjanleika á vinnumarkaði og er oft tekjuhærra og efnameira,“ segir Sonja Ýr meðal annars.