Fimm gamlir vinir ákveða að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og bregða sér um helgi út í eyjuna Grið í stafræna afvötnun. Svona hefst fyrsta skáldsaga Árna Helgasonar, lögmanns og varaþingmanns fyrir Sjálfstæðisflokkinn.„Þetta er fjölhæfur maður, hefur verið með uppistand og hlaðvörp. Hann er með þessa skapandi taug og hefur sýnt fram á það að hann getur talað og hefur hugmyndir,“ segir Sverrir Norland gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV um höfundinn. „Það kom svo sem flatt upp á mann þegar hann gaf út skáldsögu sem heitir Aftenging. Þetta er mikil nútímasaga og hún kom mér nú bara dálítið skemmtilega á óvart.“Vinirnir fara á eyðieyju þar sem auðmaður hefur byggt upp íburðarmikla aðstöðu þar sem gestir geta slakað á og aftengst snjallsímum og samfélagsmiðlum, enda nær ekkert netsamband á eyjunn