Hér fer fram bein textalýsing frá fyrri leik Benfica og Real Madrid í umspili fyrir sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Liðin mættust í síðustu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar og þar tryggði Benfica sér sæti í umspilinu með ævintýralegum sigri. Madrídingar vilja án efa hefna fyrir ófarirnar í kvöld. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay og hefst klukkan átta.