Hér fer fram bein textalýsing frá toppslag Hauka og Njarðvíkur í Bónus deild kvenna í körfubolta. Liðin eru með jafnmörg stig að loknum sautján umferðum. Lið Hauka vermir toppsætið en Njarðvík er í því þriðja í afar jafnri deildarkeppni. Leikurinn hefst klukkan korter yfir sjö og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.