Stjórnendur Símans hafa ákveðið að taka upp nýtt nafn fyrir móðurfélag samstæðunnar en Síminn hefur gert tilboð í og gengið frá kaupum á fjölda fyrirtækja síðustu misseri. Samstæðan hagnaðist um tæplega 1,6 milljarða króna árið 2025 og er það aukning frá tæpum 1,4 milljörðum árið áður.