Veðurstofa Frakklands hefur gefið út rauðar viðvaranir vegna flóða eftir að óveðrið Nils gekk yfir landið. Viðvaranirnar gilda í þremur héruðum í suðvestur- og vesturhluta Frakklands og verða í gildi þar til á morgun. Appelsínugul viðvörun er í gildi í tólf til fjórtán öðrum héruðum. Stjórnvöld ætla að lýsa yfir neyðarástandi þegar flóðunum lýkur. Heimili hafa farið á kaf og þorp einangrast eftir að Garonne-áin, sem rennur í gegnum suðvesturhluta landsins, flæddi yfir bakka sína. Vísindamenn benda á að það rigni í jarðveg sem sé þegar orðinn mettaður af vatni og því sé von á frekari flóðum.Skilti sem á stendur „Vegur lokaður“ á vegi sem flætt hefur yfir í Les Landes í suðurhluta Frakklands í dag.EPA / GUILLAUME PINON