Fréttin er samstarf Spegilsins og AusturfréttarÞótt Fljótagöngum hafi verið flýtt um heilt ár frá þeim áætlunum sem Vegagerðin kynnti fyrst fyrir innviðaráðherra boðar hann enn að framkvæmdir við þau hefjist fyrr en stofnunin áætlar. Allt þarf samt að ganga upp til að áætlun stofnunarinnar standist. Aðstæður í berginu þar þykja almennt ágætar en áskoranir eru eins og mikil jarðskjálftahætta. FORGANGSRÖÐUN JARÐGANGA „RISAMÁL“ AÐ MATI RÁÐHERRANS Spegillinn og Austurfrétt fjölluðu í gær um aðdragandann að því hvernig Fjarðarheiðargöng voru slegin út af borðinu hjá innviðaráðherra í nýrri samgönguáætlun og Fljótagöng sett í efsta sæti. Beðið hafði verið eftir ákvörðun ráðherrans því ríkisstjórnin lýsti því yfir í stjórnarsáttmála sínum að rjúfa ætti kyrrstöðu í jarðgangagerð á kjörtímabilin