Litlar væntingar eru fyrir friðarviðræðum Úkraínumanna og Rússa í Sviss í dag. Að minnsta kosti þrír létust í loftárásum Rússa á 12 héruð í Úkraínu í morgun. Eftir nákvæmlega viku eru fjögur ár síðan Rússar hófu allsherjarinnrás inn í Úkraínu.Bandaríkjamenn fara fyrir friðarviðræðunum sem eru í Genf. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar, og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, stýra fundinum.Fyrir hönd Úkraínu verða Rustem Umerov, þjóðaröryggisráðherra Úkraínu, og Kyrylo Budanov, skrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu, á fundinum. Í rússnesku sendinefndinni eru meðal annars Valdimir Medinsky, aðstoðarmaður Rússlandsforseta, og starfsmenn leyniþjónustu hersins.Litlar væntingar eru til fundarins. Dmytri Peskov, talsmaður Rússlandsforseta, sagði að f