Listería greindist í framleiðslu eldhúsinu á Vitatorgi í Reykjavík í byrjun mánaðar, Reykjavíkurborg vinnur nú að því að gera samning við þriðja aðila til þess að elda matinn. Eldhúsið hefur verið lokað frá því í febrúarbyrjun, en um 900 máltíðir voru framleiddar daglega fyrir aldraða í eldhúsinu.Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar er stefnt að því að gera samninga við þriðja aðila í vikunni, ekki er búið að ganga frá þeim. METIÐ ÓVIÐUNANDI FYRIR ÁRI Máltíðirnar sem voru matreiddar í eldhúsinu fóru ýmist í heimsendingu eða voru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Þeir sem fá heimsendan mat hafa verið að fá sendan tilbúinn mat allt frá því að smitið greindist.Aftur á móti hefur orðið skerðing á þjónustu í félagsmiðstöðvum borgarinnar, en