Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ísbúð Vesturbæjar til sölu

Ísbúð Vesturbæjar hefur verið sett í söluferli en félagið er í eigu dótturfélags Ölgerðarinnar, Kjarnavara. Ölgerðin festi kaup á Kjarnavörum í fyrra og eignaðist þar með Ísbúð Vesturbæjar.Greint er frá þessu í tilkynningu á vef Ölgerðarinnar. „Ákveðið hefur verið að setja Ísbúð Vesturbæjar í sölu, en ísbúðin er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerkið á ísmarkaði,“ segir þar.Óskað er eftir óskuldbindandi tilboðum fyrir föstudaginn 27. febrúar og skuldbindandi tilboðum fyrir 13. mars.Ísbúð Vesturbæjar er ein vinsælasta ísbúð landsins en alls eru fimm sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu.
Ísbúð Vesturbæjar til sölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta