Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

22 milljón rúmmetrar af kviku undir Svartsengi

Kvikusöfnun undir Svartsengi nálgast nú eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá því eldgos hófust á Sundhnúksgígaröðinni. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 22 milljónir rúmmetra af kviku safnast þar fyrir frá síðasta eldgosi í júlí.Samkvæmt vef Veðurstofunnar er kvikusöfnun hæg en stöðug. Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegast að næstu vikurnar hlaupi kvika frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti endað með eldgosi.Veðurstofan segir að ef komi til eldgoss sé líklegt að það verði sambærilegt þeim atburðum sem hafa hingað til orðið á Sundhnúksgígaröðinni. Hættumat er óbreytt og gildir til 3. mars.
22 milljón rúmmetrar af kviku undir Svartsengi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta