Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Reykjavíkurleiðin samþykkt í borgarstjórn

Leikskólaleiðin í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarstjórn. Breytingarnar fela í sér umtalsverðar breytingar á gjaldskrá fyrir leikskóla. Boðið verður upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun og afslátt fyrir einstæða foreldra og efnaminni fjölskyldur.Málið var sett á dagskrá borgarstjórnar í dag eftir að minnihlutinn gerði athugasemdir við kynningu á tillögunum á fundi borgarráðs í morgun. Minnihlutinn taldi aðdragandann stuttan og nauðsynlegt að ræða tillögurnar betur.Tillögurnar hlutu samþykkt með þrettán atkvæðum borgarfulltrúa meirihlutans og Viðreisnar. Aðrir borgarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.Fjallað verður um málið í kvöldfréttum sjónvarps.
Reykjavíkurleiðin samþykkt í borgarstjórn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta