Helgi Héðinsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefur látið af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga á Facebook. Hann segir ákvörðunina ekki hafa verið léttvæga en að hann hafi tilkynnt báðum formannsframbjóðendum ákvörðun sína á sunnudaginn.Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir tókust á um forystusætið um helgina og hlaut Lilja kosningu sem nýr formaður.Helgi segir að hann hafi tilkynnt ákvörðun sína fyrir kosningu til þess að hafið væri yfir allan vafa að ákvörðun hans væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr bítum.„Umhverfi stjórnmálanna er áhugavert en það er ákaflega krefjandi. Það sem vegur þyngst í þessari ákvörðun er þörfin fyrir aukið svigrúm og rými fyrir fjölskylduna mína. Þau sem starfað hafa á þessum vettvangi þekkja að þetta getur enginn