Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Uppbyggilegri viðræður en áður

Fundi samninganefnda Bandaríkjanna og Írans um samkomulag um kjarnorkusamning lauk í dag eftir tæplega fjögurra klukkutíma fund. Fundurinn fór fram í gegnum milliliði frá Óman í Genf í Sviss. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, sagði viðræðurnar uppbyggilegri en áður og að samkomulag hafi náðst um almennar meginreglur sem gætu leitt til frekari funda um í framtíðinni. Hann sagði andrúmsloftið hafa verið uppbyggilegra en áður en samninganefndirnar hittust í byrjun febrúar. Leiðin að samkomulagi sé hafin en það þýði ekki að það náist fljótt.Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans.AP / Khaled Elfiqi
Uppbyggilegri viðræður en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta