Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ráðið endurskoðunarfyrirtækið Deloitte til að kanna kostnað sveitarfélagsins við Byggðasögu Stranda. Kostnaður við úttektina á ekki að fara yfir fimm milljónir.Búnaðarsamband Strandamanna hafði frumkvæði að ritun Byggðasögu Stranda 1980. Strandabyggð, Árneshreppur og Kaldrananeshreppur keyptu verkið af sambandinu 2014 og samþykkt var að greiða 12 milljónir fyrir. LÖGÐU TIL AÐ KANNA KOSTNAÐ 2023 „Þetta er verkefni sem nær alveg aftur um rúm 40 ár og hefur skilað af sér einni góðri bók um byggðasögu Stranda, annað hefti. Útgáfa á fyrsta heftinu hefur ekki gengið eftir,“ segir Þorgeir Pálsson, oddviti Strandabyggðar.Flokkur Þorgeirs lagði til að ráðist yrði í úttektina 2023. Þá reifaði Matthías Lýðsson, fulltrúi minnihlutans, sögu Byggðasögunnar. Búnaðars