Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Læra handtökin í brjóstagjöf og bleiuskiptum á fæðingarnámskeiði

Ljósmæðurnar og vinkonurnar Heiður Sif Heiðarsdóttir og Birna Málmfríður Guðmundsdóttir halda úti námskeiðinu Fæðing og fyrstu dagarnir sem er fæðingarnámskeið fyrir verðandi foreldra. Þær segjast hafa fundið mikla þörf á að vera með slíkt námskeið á landsbyggðinni, enda séu þau langflest á höfuðborgarsvæðinu.Á námskeiðinu er farið um víðan völl, enda af mörgu að taka. Fyrst er farið yfir fæðinguna og við hverju megi búast þar, kenndar eru nuddaðferðir til verkjastillingar og öndun. Síðan er farið yfir fyrstu dagana með nýtt barn. Bleiu- og samfelluskipti verða stór hluti af lífi nýrra foreldra og því er farið vel yfir þau. Svo er brjóstagjöfin æfð með prjónuðum brjóstum og dúkkum.Landinn er á dagskrá alla sunnudaga kl. 19:45.
Læra handtökin í brjóstagjöf og bleiuskiptum á fæðingarnámskeiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta