Sveitarfélög hafa mörg hver leitað allra annarra leiða til að bregðast við styttingu vinnuvikunnar en að fjölga stöðugildum, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Hún segir að þannig hafi það orðið úr að Kópavogsbær og síðar önnur sveitarfélög hafi farið þá leið „að búa til fjárhagslegar refsingar fyrir lengri dvalartíma“ barna í leikskólum.Þetta segir Sonja í aðsendri grein á Vísi þar sem hún bregst við áformum Reykjavíkurborgar um breytingar á leikskólamálum.Hún vill að ríki og sveitarfélög hefji viðræður um uppbyggingu og fjármögnun leikskólastigsins. „Það er ótækt að áður en til þess kemur séu sveitarfélög að hola kerfið að innan með þjónustuskerðingu, innleiðingu tekjutengingar og verulegrar hækkunar gjaldskrár.“Sonja segir að fjöldi sveitarfélaga hafi gert grundvallarkerfisbr