Hermönnum í Úkraínu býðst nú að frysta sæði og egg án endurgjalds vegna vaxandi mannfalls í stríðshrjáðu landinu. Þar er bæði hæsta dánartíðni og lægsta fæðingartíðni í heimi. HRUN Í ÍBÚAFJÖLDA YFIRVOFANDI Úkraínumenn voru 46 milljónir fyrir allsherjarinnrás Rússa 2022 en eru nú færri en 36 milljónir. Nokkrar milljónir búa á hernumdum svæðum í austurhluta landsins, nokkrar milljónir eru á flótta og hundruð þúsunda eru særð eftir tæplega fjögurra ára stríð.Samkvæmt lýðfræðistofnun Vísindaakademíu Úkraínu á íbúum eftir að fækka meira og hún áætlar að árið 2051 verði aðeins 25 milljónir manna eftir. Í Úkraínu er bæði hæsta dánartíðni og lægsta fæðingartíðni í heimi, samkvæmt opinberu gagnasafni bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Fyrir hverja fæðingu í Úkraínu eru um það bil þrjú dauðsföll.