Formenn VR og BSRB gagnrýna breytta Reykjavíkurleið. Formaður VR segir tekjutengingu leikskólagjalda fátæktargildru og formaður BSRB segir flesta foreldra nú standa frammi fyrir því að greiða meira eða þurfa að draga úr vinnu. Hún segir umhugsunarvert að svo stórar kerfisbreytingar hafi orðið án nokkurrar pólitískrar umræðu og gagnrýnir að starfsfólki og foreldrum sé stillt upp sem andstæðum hópum.