Doddi hjálpar þjóðinni að koma sér í góðan gír fyrir helgina á föstudagskvöldum með Partýverkum frá 22:03. Góðir gestir kíkja í heimsókn, bæði plötusnúðar og aðrir, sem taka græjurnar yfir og spila sína samkvæmistónlist. Næsta föstudagskvöld fáum við rithöfundinn og samkvæmisljónið Júlíu Margréti Einarsdóttur og ætlar hún að stjórna veislunni í góðan hálftíma. Á næstu vikum fáum við plötusnúðinn Kidda Bigfoot, leikarann Villa Neto og íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson til að nefna einhverja.