Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að skýra betur frumvarp til laga um vísitölutengingu almannatrygginga. Þetta kom fram í máli hans á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag.Sjá má upptöku af fundinum í heild sinni hér.„Það virðist ekki ríkja eining um það hvað lögin þýða, eftir því sem ég sé,“ sagði ÁsgeirMarkmið frumvarpsins er að draga úr hættu á að lífskjör bótaþega dragist aftur úr öðrum hópum með því að tengja greiðslur við vísitölu launa í stað vísitölu neysluverðs. Ekki hefur verið eining um áformin og afleiðingar þeirra og viðurkenndi Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í morgun að skýra þyrfti frumvarpið frekar fyrir þriðju umræðu.„Eins og lögin eru skrifuð, þá eru kannski nokkrir hlutir sem maður myndi hafa áhyggjur af, í fyrsta lagi e