Samtals voru gerðir 24 starfslokasamningar hjá forsætisráðuneytinu og undirstofnunum á árunum 2018 til 2025 og var kostnaður við þá alls tæplega 180 milljónir króna. Langmestur kostnaður var vegna starfslokasamninga hjá Seðlabanka Íslands eða samtals rúmlega 161 milljón á tímabilinu.