Ólafur Stefánsson handknattleikskappi hefur verið talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin, sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Íslendingar nutu þess að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann vann nánast öll verðlaun sem hægt var að vinna og var ítrekað ofarlega á listum yfir bestu handknattleiksmenn í heiminum. Eftir að ferlinum lauk hefur hann þjálfað og unnið í menntamálum og nú hefur hann stofnað fyrirtæki sem kallast Afreksmanneskjan, en tilgangur þess er að aðstoða ungmenni til að ná árangri í námi og íþróttum. Ólafur var gestur Mannlega þáttarins á Rás 1 þar sem hann fór yfir ferilinn og sagði frá sjálfum sér. „SEM PABBI ÞURFTI MAÐUR AÐ HALDA ENN MEI