Hljómsveitin Kaleo vill halda tónleika á Þingvöllum í sumar. Þingvallanefnd hefur skrifað undir viljayfirlýsingu vegna tónleikahaldsins og nefndarmaður segir hana jákvæða gagnvart hugmyndinni, að því gefnu að tilskilin leyfi fáist.Skemmst er að minnast stórtónleika Kaleo í Vaglaskógi síðasta sumar sem hátt í 10 þúsund manns sóttu. Jakob Frímann Magnússon, tónleikahaldari, segir áætlað að tónleikarnir á Þingvöllum, sem áætlaðir eru 20. júní, verði með svipuðu sniði.Erindið var fyrst tekið fyrir á fundi Þingvallanefndar 25. september í fyrra og 22. október samþykkti nefndin viljayfirlýsingu vegna verkefnisins sem var í gildi til loka janúar. Á fundi nefndarinnar 14. janúar segir að þegar ítarleg áætlun og greinargerð liggi fyrir, og umsagnir allra umsagnaraðila, muni nefndin taka afstöðu. Á