Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hörð deila um Stóru-Laxá fer fyrir Hæstarétt

Hæstiréttur samþykkti á dögunum að taka fyrir deilu landeigenda og leigutaka veiðiárinnar Stóru-Laxár um hvort leigutakinn megi fara um 500 metra veg á jörðinni til að komast að veiðistöðum. Harðar deilur hafa geisað milli leigutakans og landeigenda síðustu ár sem snúa ekki helst að því hverjir megi veiða og hversu mikið. Fjallað var um þær í þættinum Þetta helst á Rás 1 í fyrra. Þar sagði leigutakinn landeigendur stunda stórfellt laxadráp en landeigendur sögðu hann fara offari og stunda eignaspjöll.Landeigendur báðu sýslumann um að setja lögbann á för leigutakans um 500 metra langan veg frá Iðubrú á Hvítá að veiðisvæðum, sem nefnist Veiðivegur. Þau sögðu hann fara um einkaveg og vildu koma í veg fyrir slíkt. Leigutakinn sagðist verða að fara þarna um til að komast að veiðisvæðum.Landeigen
Hörð deila um Stóru-Laxá fer fyrir Hæstarétt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta